11desember

okei

Á morgun á ég pantað flug en að öllum líkindum verður ekki flogið. fékk sms i gærkveldi um að flug mitt myndi sennilega raskast!
Þar sem ég er á næturvakt núna, kvíði ég endalaust fyrir að þurfa að vaka eftir því þegar ég fæ loksins að fljúga, eða að þurfa að vakna eftir þrjá fjóra tíma, þá er mjög líklegt að ég slái þessu upp í kæruleysi og sleppi því alfarið að fara því að ég tek meiri svefn fram yfir allt annað!

 

11. desember 2008 klukkan 03:30
þú mátt kalla mig Grettu!
Engin athugasemd
04nóvember

BJ'ANI:)

Þar sem ég er að fara að hitta Helgu vinkonu mína um helgina, þá fór ég nú að rifja upp gamla og góða tíma með henni, þá sérstaklega þann tíma sem ég var með henni út í Vín....
'Eg á bara góðar minningar þaðan
ég held að það hafi verið ein sú besta ákvörðun mín í lífinu að hætta í skólanum og fara út í heimsókn til hennar..BREYTTist ógurlega mikið,held ég hafi kanski þorað í fyrsta sinn að vera ég Sjálf Opinberlega SNARRUGLUÐ:) hehe..En er samt fegin að ég komst lifandi frá þessu öllu saman því allt sem hét skynsemi var skilið eftir heima á klakanum....Gerði bara nákvæmlega það sem ´mér datt í hug og talaði næstum við ALLT fólk,T.d. fór á deit í fyrsta skipti, FANNST það bara ógurlega fyndið, ..'Eg kynntist pólsku, íslensku,norsku,afrísku,Tyrknesku, japönsku ALLRA þjóða kvikindum já Finnsku, serbnesku og Hagaði mér gjörsamlega Einsog F'IFL...Fannst allveg 'ogeðslega gaman að fara á stað sem hét Flex, og einu sinni nennti ekki Helga að vera þar lengur svo ég varð bara eftir EIn með fólki sem ég þekkti ekk það mikið, En ég kom mér heim heilu og Höldnu...alveg crasy
hmmmmmm það er gaman að haga sér einsog brjálæðingur og láta einsog engin sé morgundagurinn...En ég var nú samt ekki í eiturlyfjum eða að sofa hjá,þannig að mörgu leyti hagaði ég mér vel:) hehe
Man að það besta var að fá sér Kebab og kók á Alserstrasse..einu sinni fengum við okkur Kebab á öðrum stað og þá enduðum við á spítala með Matareitrun frá HELV'ITI:) J'A SÆLL!!!
     Man eftir einstökum Persónum Spænsku stelpunni sem söng svo fallega, átti kærasta sem hún faldi í herberginu sínu þegar stjórinn kom í heimsókn, hann var alltaf búin að elda þegar hún kom heim,..hún reyndist vera svo algjör tussa...Mjá hinum pólska sem var agalega sætur og þvílíkur EGóisti..Emanuel frá Afríku sem varð svo loks kærastinn hennar Helgu, Finnsku stelpunni Anítu og spænsku stelpunni Anítu, Halla og Vala og allir hinir íslendingarnir..portúgalska konan sem ég bjó hjá..strák sem ég fór á deit með sem ég hljóp svo í burtu frá þegar hann var orðin AÐEINS of ágengur, sem betur fer var ég nú það skynsöm að vera á fjölmennum stað:), Fór í partý til Serba og yndislegu Tyrkirnir sem buðu mér oftar en einu sinni í mat:) hostelinu sem ég og Heiða gistum á, þegar við villtumst á Mariahilfenstrasse...BIlla búðinn H&M...shaun brau...Alltaf upplifun að fara á Karlsplatz, jólamarkaðurinn var æði..'þýskunámskeiðin góðu
goooood times en GEðveiki samt sem áður


EN Nú langar mig aftur í GEÐVEIKI ´..hvurnig væri bara að skella sér út í heim eitthvert?????

04. nóvember 2008 klukkan 05:09
þú mátt kalla mig Grettu!
Engin athugasemd
16október

hringvitlaus

Þegar maður upplifir sömu hlutina aftur og aftur og verður alveg Hringvitlaus...


16. október 2008 klukkan 03:45
þú mátt kalla mig Grettu!
1 athugasemd
22september

löng vakt..næturvakt

eitthvað bull sem sunna karen plataði mig út í

4 störf sem ég hef unnið:
hef eiginlega bara unnið á HSA Seyðisfirði..
annars ýmis bústörf, nokkrar vaktir í bræðslunni og unglingavinnunni...

4 uppáhaldsmyndir:
shawshank redemption
notebook
10 things i hate about you
??? æ þetta er hundleiðinlegt!

4 staðir sem ég hef búið á:
Dvergsteini, ljósvallagötunni. heimavistinni í ME, og svo bjó ég í smá tíma í Vínarborg..

4 uppáhalds sjónvarpsþættir:
despó
bevó
baywatch
spaugstofan, frábærir þættir

4 staðir heimsóttir í fríi :
æ veit það ekki

4 síður fyrir utan bloggar.is :
Mbl.is
Facebook.com
visir.is
hotmail.com

4 uppáhalds matarkyns :
Lambakjöt
Fiskur(þorskur og ýsa )
ostur (næstum allar tegundir)
nautakjöt
4 uppáhalds bækur:
Meistarinn og Margaríta
Frjáls-ævisaga Hirsi Ali..af því að hún er seinasta bókin sem ég las
Í heimsókn hjá Hönnu
úff ég les ekki nóg:S


þetta fannst mér miður leiðinlegt og ætla ekki að klukka neinn:P


hehe


er á Næturvakt, þreytt og pirruð!

mig vantar að berja eitthvern..eitthver sem vill bjóða sig fram?


vantar hreyfingu í líf mitt....annars keypti ég mér fullt af málingadóti upp á markaðnum á Egillsstöðum og fjöldaframleiði bara listaverk í stórum stíl..hehe

það fá allir málverk í jólagjöf;)


,,´
I hate the way you talk to me
And the way you cut your hair
I hate the way you drive my car
I hate it when you stare

I hate your big dumb combat boots
And the way you read my mind
I hate you so much that it makes me sick
It even makes me ryhme

I hate the way you're always right
I hate it when you lie
I hate it when you make me laugh
Even worse when you make me cry

I hate the way you're not around
And the fact that you didn't call
But mostly I hate the way I don't hate you
Not even close, not even a little bit, not even at all. "
einmitt úr myndinni 10 things i hate about you .. 


22. september 2008 klukkan 01:53
þú mátt kalla mig Grettu!
Engin athugasemd
20september

smá þunn;)


,,Á hringtorgunum þykist ekki þekkja á mér nein skil, þannig virkar það allavegna, síðan hvenær er ég ekki til.en það er satt og það er skrýtið en ég sakna þín ennþá pínkulítið,svona er það best okkur gengur nú flest í vil, en það er samt einsog það sé eitthvað sem að mér amar ó gef mér aðeins eina nótt,gef mér aðeins eina nótt, og svo aldrei nokkurn tíman framar"


Ligg heima hjá Telmu alveg klesst í sófanum að hlusta á meistara Megas! Telma litla er steinsofandi í hinum sófanum með lugnabólgu:S ég hef áhyggjur af því að hún hugsi ekki alveg nógu vel um sig.

það er svo nice að vera svona smá þunnur, ef að marr þarf ekki að vinna:) losaði mig við næturvaktirnar um helgina, því hún Oddný litla er í heimsókn, svo ég þarf ekki að vinna fyrr en á sunnudagskveld en þá þarf ég reyndar að vinna í 14 tíma..

búin að redda Hrefnu Bóel og búin að panta skoðun fyrir hana..hef fulla trú á henni

kíkti á Láruna þar sem var ágætur stemmari, Rúnar félagi minn mætti, en fékk ekki inngöngu inn á barinn því hann er svo ógeðslega loðin!

annars allt gott að frétta,,,



,,Jæja og síðan tek ég hnífinn beitta hnátan mín netta og granna
á hálsinum þínum mjúka því næst mun ég bitið kanna
og ég laugast allur blóði þínu
svo bláu og sætu og fínu
ég býst við það sé eitthvað heillin sem ég vildi sanna
jú það að ég þér alla tíð unni
ó gemmér aðeins eina nótt,aðeins eina nótt, aðeins eina nótt
svo ég eigi þig í minningunni"

20. september 2008 klukkan 15:53
þú mátt kalla mig Grettu!
1 athugasemd
16september

ljósið í myrkrinu

seinustu vikur hafa verið þær ömurlegustu sem ég hef upplifað bara á allri minni ævi


ég var bara í skítnum..

en þrátt fyrir það á ég svo hrikalega góða að, að ég kom alveg óskemmd út úr þessu öllu saman bara reynslunni ríkari...ég held líka að ég sé ekki eins mikill ræfill og ég held stundum að ég sé;)..
svo ég held það hljóti að vera bjartari dagar framundan:)

ég ætla að vera hérna í vetur á Seyðisfirði..held það verði bara fínt, Telma verður allavegna á staðnum og hef ég trú á því að Oddný verði alltaf með annan fótinn hérna:)
......þannig ekkert á dagskránni hjá mér í bráð, bara að losna við þessi kíló sem hafa sest utan á mig undanfarnar vikur hehe;)
bara að safna pening og kanski dansa a barnum þegar tími gefst til hehe

svo skelli ég mér í ævintýraferð eitthverntíman á næsta ári, búin að fá margar hugmyndir

bíllinn minn hún Hrefna bóel, þarf að fara í skoðun, komin með miða og allt..en afturdekkin hreyfast ekki þannig að ég kemst ekki langt á honum einsog er,þarf að kíkja betur á þetta..alveg stórspurning hvort hún fái skoðun, því hún er alveg ryðguð í drasl:S..ætla bara rétt að vona að nafna hennar í köben sé í betra ástandi!




16. september 2008 klukkan 13:21
þú mátt kalla mig Grettu!
Engin athugasemd
19ágúst

þreytta Margrét

ég rauf áfengisbannið mitt á laugardaginn, og drakk einsog engin væri morgundagurinn..
ástæðan var að í rauninni yrði þetta seinasta sumardjamm mitt á Seyðisfirði...var ekki svo ánægð með sjálfan mig því ég þurfti að vinna tólf tíma á sunnudeginum..en uss annað eins hefur maður nú gert;)
er á leiðinni suður um helgina að hitta skemmtilegt fólk!
á eina helvítis vakt eftir, svo ætla ég að flýja suður svo ég fái að vera í fríi í friði...:) mmmm nice:D








19. ágúst 2008 klukkan 23:43
þú mátt kalla mig Grettu!
Engin athugasemd
12ágúst

Hanskotinnn



* 'Olafsvakan var mjög skemmtileg, nú hef ég keyrt í útlöndum og hitt pabba hennar Telmu.



12. ágúst 2008 klukkan 04:29
þú mátt kalla mig Grettu!
1 athugasemd
21júlí

lífið heldur áfram


get ekki sagt annað að marr sé hálf þreyttur eftir þessa helgi!!!

vinna og djamm fara kanski ekki alveg saman, og spurning um að vera bara næst í fríi þegar Lunga er;) alveg stór spurning!!:)


ég skemmti mér samt bara mjög vel, þrátt fyrir að ég hefði nú viljað frekar hafa hljómvsveitina Bermúda að spila heldur en þessa djeija..

ég missti af balng gang því ég þurfti að vinna í tvo tíma, en sá Fm belfast sem voru hreint magnaðir!

partý hjá jökli var líka fínt! og veðrið var æðislegt..og tískusýningin var mun skárri í ár!!

missti hins vegar af öðrum viðburðum vegna vinnunar

annað skemmtilegt sem ég gerði var t.d. að synda í lóninu og Borðar fjóra pylsur:)  ég var svöng eftir sundið hvað er þetta!!!!
reyndi að setja lífsreglunar fyrir suma, stundum gleymi ég því bara að fólk verður bara að fá að vera einsog það vill vera:D 
hehe

var að koma inn, var að raka dreifar( á traktor ekki með hrífu ég er ekki geðveik), veðrið er yndislegt og vildi ég svo miklu meira vera í heyskap en á sjúkrahúsinu þannig er nú bara það
21. júlí 2008 klukkan 14:46
þú mátt kalla mig Grettu!
Engin athugasemd
16júlí

sprellfjörug einsog sprellikarl!!!

sólarleysið á Seyðisfirði er að ganga að mér dauðri!!! ský ský burt með þig og svo framvegis:)

þar sem var bara rigning í dag ákvað ég að sofa til sjö:) mjög góður svefn!!! (ég var á næturvakt)

annars er lífið búið að vera fínt, afmælið var alveg frábært:) Stelpurnar fengu alveg hellings af gjöfum, twistkeppnin var mögnuð og svo var sungið í karókí og skellt sér í lónið og svo framvegis..mættum svo þunnar á fótboltaleik, og hef ég nú bara aldrei skemmt mér jafn vel, vegna frábærrar lýsingu á leiknum allan tíman frá oddu bjö..

Ríkey fær samt sérstakar þakkir fyrir að gefa mér líka afmælisgjöf, nokkuð sátt með hana:) reyndar himinlifandi:)

svo þessa helgi er LUnga, og ætla ég nú bara að djamma þó ég sé að vinna;) skellti mér á opnuna í gær, sem var fín:)

svo Færeyjarferðin....jeyyyyyyyy svo gaman:)


16. júlí 2008 klukkan 01:29
þú mátt kalla mig Grettu!
Engin athugasemd

Aðalvalmynd

Könnun

á margrét eftir að

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Textareitur

clipart.htm">
Free Hearts - ClipartSpace.com

Leikur dagsins

Textareitur

margrét sigðurðardóttir fæddist á seyðisfirði 20.október á því frúar ári 1986. ...

blabalblalbalalblalblablablalablablablablalbablabl
ef þú vilt segja mér eitthvað ógeðslega fyndið þá er þér það guð velkomið msn: xmaggax@hotmail.com .........eða þú getur líka sent mér brandara á sama netfang,,,,,;) eða .þú getur líka alveg sleppt því
og bara kommentað og skitið í gestabókina og FARIÐ!!!!!

elska ykkur;*





Leit